Schnelleinstieg:

Direkt zum Inhalt springen (Alt 1) Direkt zur Hauptnavigation springen (Alt 2)
Onleihe fyrir iOS Illustration: Maria Tran Larsen © Goethe-Institut

Uppsetning Onleihe appsins fyrir iOS

Á þessari síðu finnur þú upplýsingar um uppsetningu Onleihe appsins fyrir iOS. Appið er nauðsynlegt til að hægt sé að nálgast stafræna bókasafnið með yfir 20000 þýskum titlum í gegnum símann þinn eða spjaldtölvuna.
Leiðarvísi fyrir Android tæki má finna í kaflanum yfir uppsetningu Onleihe appsins fyrir Android.



 

Skref 1: Innskráning á Mein Goethe.de

Til að nota Onleihe þarf skráningu hjá heimasíðunni Mein Goethe.de. Eigir þú ekki reikning á heimasíðunni okkar, skaltu vinsamlegast búa hann fyrst til.
Skráningin og notkun þjónustunnar er gjaldfráls. 


Skref 2: Að virkja Onleihe

Eftir að þú hefur skráð þig inn í Mein Goethe.de, skaltu finna valmyndina "Mitt Onleihe" og smella á "log in".

Skref 3: Niðurhal appsins

Sæktu appið til að nota Onleihe í snjalltækinu þínu. Opnaðu appið eftir uppsetningu.

Skref 4: Innskráning

Innlogging Onleihe iOS © Onleihe Opnaðu valmyndina í Onleihe appinu (efst til vinstri).

>> Veldu stafræna bókasafn Goethe-Institut.
>> Skráðu þig inn með upplýsingum fyrir Mein Goethe.de reikninginn þinn.

Skref 5: Sækja gögn

Stöbern © Onleihe Nú ert þú innskráð/ur. Veldu valmyndina "Browse" til að leita að og sækja gögn.

Skref 6: Samþykkt notendaskilmála

Datenschutzerklärung und Nutzungsbedingungen © Onleihe Ef þetta er í fyrsta skipti sem þú sækir bókasafnsgögn, munt þú verða beðin/n að samþykkja notendaskilmála og persónuverndarstefnu. Vinsamlega staðfestu að þú samþykkir.

Nú hefur þú virkjað Onleihe appið. Ef einhver vandamál koma upp við virkjunina eða við notkun, hafðu samband í gegnum fyrirspurnagluggann eða í síma +45 33366456. Við aðstoðum með ánægju!

Við vonum að þú skemmtir þér vel við að skoða rafræna bókasafnið okkar.

Top